Grýtt byrjun var besta gjöfin mín.

Ég er mjög þakklát fyrir að fæðast í sveit því náttúran hafði góð áhrif á mig.  Á sveitabænum bjuggu þrjá fjölskyldur en sambúðin var ekki auðveld og heldur ekki hjónaband foreldra minna sem var í upplausn í erfiðum kringumstæðum og ekki síst eftir að ég fæddist, sjötta barnið. Móðir mín fékk slæmt fæðingarþunglyndi og þegar ég var þriggja ára fór hún í burtu til að ná kröftum, en hún kom ekki aftur til baka.

Fyrir lítið barn hélt lífið áfram, ég var pabbastelpa og í sveitinni lærði maður bara að vinna og halda áfram. En fyrir innra barnið var þetta tilfinningalegur skortur, kannski skilaboð um að ég væri ekki mikils virði að einhver kærði sig um mig eða elskaði mig.

Ég varð leikskólakennari kannski til að læra um þarfir barna.

Ég gifti mig og eignaðist börn og mér fylgdu ýmis mynstur sem voru til trafala í samskiptum. Á fullorðinsárum gekk ég í gegnum þerapíur og tilfinningalega úrvinnslu og það hjálpaði mér að verða betri manneskja en innra barnið var áfram týnt og hjartað hálf lokað, verð ég að segja.

Ég hafði ekki mikið sjálfstraust og tjáning vafðist fyrir mér. Það var ekki fyrr en ég kynntist kjarnaolíunum, í gegnum námið mitt í náttúrulækningum árið 2000, að ég fór að nota olíurnar og tengja.

Að láta nefið ráða heiluninni

Ég segi stundum að olíurnar séu flókin efnafræði en að ég kenni þér hana aðallega með nefinu, sem er auðvelt og ég hvet þig til að prófa að láta nefið hjálpa þér að finna hvaða olíur þú getur notað fyrir þig.

Ég tók í byrjun ástfóstri við Joy og Trauma Life, sem var áhugavert (ef þú hefur upplifað virkni olíanna þá skilur þú mig). En áhugi minn á Trauma Life var mikill í smá tíma en svo hvarf áhuginn snögglega, eins og ég þyrfti ekki lengur á henni að halda.

Ég notaði Frankincense sem ilmvatn og Valor yfir mig alla. Ég lærði að setja Forgiveness á naflasvæðið í 30 daga í röð, fyrir svefn, helst til að fyrirgefa sjálfri mér og fjölskyldunni. Svo auðvitað notaði ég Release á lifrina til að losa pirring og reiði og reyndar margar fleiri olíur sem of langt mál er upp að telja.

Valor varð besti vinur minn

En það var VALOR (þor), hugrekkisolían, sem breytti lífi mínu.
Ég notað Valor ótæpilega, ég bókstaflega hellti henni yfir mig. Mér fannst gott að nota hana ofan á höfðuðið og á úlnliðina.

Valor gefur hugrekki, ég var frökk að sumu leyti en mig vantaði dug til að standa með sjálfri mér og Valor tengdi mig við jörðina og hjálpaði mér að sjá hvað skipti mestu máli fyrir mig.

Hamingjan kemur innanfrá og til að hjálpa sjálfri mér þá notað ég bara  Valor og öll sjálfsvinna virkaði betur. Þetta breytti líðan minni og viðhorfum mínum. Ég breyttist, ég raunverulega umbreyttist!

Ég hætti að vinna sem leikskólakennari og henti mér útí djúpu laugina að  vinna sjálfstætt og kenna fólki að nota náttúrulegar leiðir í heilsu, að nota töfra náttúrunnar.
Smátt og smátt þá tengdist ég betur hinum andlega krafti alheimsins sem er líka innra með okkur sjálfum og ég fann hinn djúpa og sanna tilgang minn, að þjóna náttúrunni, hjálpa jörðinni og kenna fólki um heilsu.
Með þessari tengingu hefur lífið mitt aðeins batnað! Velgengni mín hefur sýnt mér að ég er á réttri leið. Mér hefur ekki aðeins liðið svo miklu betur heldur hef ég fengið ýmsar viðurkenningar, meðal annars auðnast að heimsækja marga búgarða Young Living, sem er ómetanleg reynsla og upplifun á svo mörgum sviðum.

Meira um töfra olíanna

Ég  sannarlega elska að kenna fólki um töfra náttúrunnar sem ég upplifi.

Olíurnar taka mig sífellt í ný og skemmtileg ferðalög dýpra inní sjálfa mig. Ég skynja þetta sem hreina töfra náttúrunnar frá jörðinni ásamt visku andans, sem koma saman í þessu loftkennda kraftmikla efni sem eru hreinar kjarnaolíur. Þessi efni hafa djúpstæð áhrif sem ég er ákaflega þakklát fyrir.

Mig langar að segja þér aðeins fleiri sögur um olíur en fyrir rúmum 2 árum notaði ég mjög mikið Believe blönduna sem inniheldur Northern Light Black spruce, þetta er mögnuð blanda og ég kalla hana litlu, stóru systur Valor. Eftir að ég byrjað að nota Believe urður enn meiri breytingar í lífinu hjá mér meðal annars mun meiri tjáning og meira frá hjartanu og eru þessi skrif í gegnum fréttabréf og vefsíðuna hluti af því breytingaferli. Ég mun skrifa meira um Believe síðar en ég verð að segja þér eina litla sögu enn.

Ég notaði Harmony mjög mikið á tímabili til að heila vinstri öxlina mína, en það kom í ljós í vöðvaprófun að í öxlinni sáttu einhver tilfinningasár frá hrjóstrugu tilfinningaumhverfi æskunnar. Flestir burðast með gamla pakka og tilfinningabyrgðar geta verið þungar án þess að maður hafi hugmynd um það. Það kom mér á óvart að það var Harmony olían sem líkaminn vildi nota á öxlina því ég hafði alls ekki laðast að þessari blöndu en á þessum tímapunkti makaði ég henni á öxlina og naut þess. Stundum þarf maður að bíða eftir að rétti tíminn komi fyrir réttu olíuna.

Núna er ég mjög sátt og lífið hefur sjaldan verið meira spennandi og ég hlakka til að vakna á hverjum degi.

Hjálpaðu mér að uppfylla drauminn fyrir Ísland

Draumur minn er að sem flestar mæður og sem flest heimili á landinu noti aðein hrein og náttúruefni fyrir vellíðan og heilbrigði á öllum sviðum. Hvort sem það eru Young Living vörur eða aðra hreinar og umhverfisvænar vörur.

Þegar ég nota kjarnaolíur þá nota ég aðeins Young Living olíur, en gæðastaðall þeirra Seed to Seal® tryggir hreinleika og virkni. Ræktun er lífræn og í samhljómi við náttúruna. Notaðar eru vísindalegar aðferðir við framleiðsluna og prófanir til að tryggja að töfrar náttúrunnar fái notið sín í olíunum. Ekki síst þá byggir framleiðslan á kærleika og umhyggju fyrir fólki og fyrir jörðinni og það skiptir máli fyrir mig.

Ilmandi kveðja og kærleikur til þín